Malcom X barðist fyrir þjóðernisstefnu svertingja - hugmyndafræði sem hvetur Ameríkana af afrískum uppruna til að lifa aðskylda frá samfélagi hvítra manna. Hann gagnrýndi marga opinbera talsmenn borgaralegra réttinda fyrir að vilja sameiningu og bar því við að hvítir myndu aldrei samþykja afrísk-ættaða Ameríkana sem jafningja. "Hinn svokallaði negri hefur verið heilaþveginn af yfirburðum hvíta mannsins að þeim punkti þar sem hann trúir því ekki lengur að hann sé að áorka neinu, né eigi neitt, ef hann á ekki hús í hverfi hvíta mannsins, sæti í skóla hvíta mannsins eða stöðu í starfi hvíta mannsins" - Teacher's Domain
Alþjóðernisstefna eða alheims-þjóðernisstefna, byggist á þeirri hugmynd að hvert einasta þjóðarbrot (sameinað af sömu menningu, arfleið og tungumáli) heimsins eigi skilið sína eigin þjóð. Alþjóðernissinnar álíta að hópar þjóðernissinna hafi ekki efni á því að huga aðeins að sínum eigin ættbálk, mikilvægara sé að allir sameini hug sinn í sömu baráttunni: að koma á laggirnar þjóðernissinnaðri reglu hjá öllum þjóðum veraldarinnar. Helsti óvinur okkar í dag er ekki næsti náungi. Helsti óvinur okkar er kerfið sem "nútíma samfélag" byggist upp á, og misnotar okkur. Takmark okkar er að brjóta niður og endurreisa nútíma samfélag þar sem við viðhöldum góðu þáttum þess (tækni) og drepum niður eyðileggjandi þætti þess. Þessu takmarki er meðal annars náð með því að setja menningu fram yfir verslunarhyggju hjá hverri einustu þjóð heimsins og aðferðin til að ná þessu takmarki er alþjóðernisstefna.
Þetta er líkt og þegar þú færð í hendurnar kaffi sem er of svart, sem þýðir að það er of sterkt. Hvað gerirðu? Þú blandar út í það mjólk; þú deyfir það. Ef þú hellir of mikilli mjólk út í, þá muntu á endanum ekki einu sinni vita að þú hafir verið með kaffi. Það var heitt, nú er það kalt. Það var sterkt, nú er það dauft. Það hefði vakið þig, en núna þreytir það þig. Þetta er það sem þeir gerðu í göngunni gegn Washington. Þeir slógust í hópinn. Þeir samlöguðust ekki; þeir laumuðu sér inn. Þeir gengu til liðs og urðu hluti af henni, eignuðu sér hana. Þar sem þeir yfirtóku hana þá tapaði málstaðurinn öllu harðfylgi sínu. - Malcolm X